Fréttir

Tilkynningar

Viðburðir

04.06.2026 kl. - Salurinn

Áskrift á Tíbrá 2026/2027

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleika formið. Nú kynnir Salurinn nýja Tíbrárröð til leiks og má með sanni segja að starfsárið 2026 – 2027 verði glæsilegt, fjölbreytt og spennandi. Stór hópur tónlistarfólks í fremstu röð flytur litríka dagskrá þar sem hljómar splunkuný tónlist í bland við sígild meistaraverk og fáheyrðar perlur.Í ár kynnir Salurinn nýjan tónleikatíma fyrir Tíbrá. Allir tónleikar fara fram á miðvikudagskvöldum kl. 20:00 en á undan tónleikunum, klukkan 19:30, verður boðið upp á tónleikaspjall um viðfangsefni hverra tónleika.Hægt er að kaupa áskrift á alla sjö tónleika raðarinnar á aðeins 15.000 kr. Áskriftasölu lýkur 1. september 2026.  Dagskrá:Fallin - 9. september kl. 20:00Hamingja og Harmur - Bel canto - 14. október kl. 20:00Franska salónið - 25. nóvember kl. 20:00//Mörk hins skrifaða og hins spunna - 20. janúar kl. 20:00Frá helgisiðum til rapsódíu - 24. febrúar kl. 20:00Tileiknun - 10. mars kl. 20:00Í nýjum fötum - 14. apríl kl. 20:00
10.08.2026 kl. - Salurinn

Alþjóðlega píanókeppnin

Alþjóðlega píanókeppnin WPTA Iceland IPC26 og sumarnámskeið verða haldin í annað sinn í Salnum 10. – 16. ágúst í samvinnu við Opna Listaháskólann og Tónlistarskóla Kópavogs. Kópavogsbær er áfram traustur bakhjarl píanókeppninnar eins og á fyrra ári en þetta metnaðarfulla verkefni byggir á að veita ungum píanóleikurum tækifæri til að flytja tónlist fyrir alþjóðlega dómnefnd í keppnisumhverfi af þeim hæstu gæðum sem Salurinn býður upp á. Keppnin er með alþjóðlega vottun Alink-Argerich Foundation og eru vegleg peningaverðlaun í boði Tónastöðvarinnar og Steinway. Allir viðburðir og tónleikar í Salnum í tengslum við Alþjóðlegu píanókeppnina og sumarnámskeiðið verða opnir almenningi án endurgjalds. Í tengslum við píanókeppnina verður haldið alþjóðlegt sumarnámskeið 4. – 13. ágúst í Listaháskóla Íslands og Salnum þar sem ungum píanóleikurum gefst tækifæri til að taka þátt í meistaranámskeiðum innlendra og erlendra prófessora auk þess að koma fram á tónleikum í Salnum. We are proud and delighted to announce that the International Piano Competition and Summer Festival, which took place this past August, will return in the summer of 2026. The project is the result of a strong partnership between WPTA Iceland and Opni LHÍ (the Iceland University of the Arts Open University), and has already garnered considerable attention for its professionalism and exciting opportunities for young pianists. WPTA Iceland is grateful for the continuing support from the municipality of Kópavogur cultural fund as well as the generous monetary prizes sponsored by Tónastöðin and Steinway. The competition is a proud member of the Alink-Argerich Foundation and features world-class facilities at the Salurinn Concert Hall where all participants will perform for an international jury panel. All competition events and festival concerts and masterclasses in Salurinn will be free and open to the public.
12.08.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Alla miðvikudaga í sumar bjóðum við á Bókasafni Kópavogs og Náttúrusafni upp á sumarsmiðjur frá kl. 14:00 til 17:30, þar sem dýr og náttúra verða í sviðsljósinu. Komdu og búðu til dýragrímur, dýrafígúrur, litaðu skemmtilegar söguhetjur eða taktu þátt í lista- og náttúrusmiðjum. Smiðjurnar verða rúllandi og mun hver smiðja bjóða upp á eitthvað af ofantöldu. Þá verður umhverfisofurhetjan í gangi í allt sumar þar sem börn geta leyst umhverfistengd verkefni og fengið verðlaun. Sumarlesturinn verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Gúnda geit.
12.08.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
13.08.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Fatabreytingar og kennsla á saumavél

Á fimmtudögum í sumar á milli 14.00-16.00 ætlar Alex, starfsnemi hjá okkur á bókasafninu frá Þýskalandi að bjóða upp á kennslu á saumavélarnar okkar góðu og aðstoða gesti við að laga og breyta fötum. Kennslan fer fram á ensku. Nauðsynlegt er að skrá sig og taka fram hvaða dagur (9. júlí, 16. júlí, 23. júlí, 30 júlí, 6. ágúst eða 13. ágúst) og tími (14.00 eða 15.00) hentar með því að senda póst á bokasafn@kopavogur.is Setjið í efnislínu: Berist til Alex – saumakennsla. Endilega takið fram þegar þið skráið ykkur hvað þið viljið gera á saumavélina, hvaða verkefni þið ætlið að koma með svo kennarinn geti undirbúið sig.   Gott væri ef pósturinn væri á ensku.      Sewing Machine Guidance and Clothing Alterations on thursdays at Kópavogur Library On Thursdays this summer, from 2:00 PM to 4:00 PM, Alex, our intern from Germany, will be offering guidance on how to use our sewing machines and assisting visitors with mending and altering clothing. The instruction will be conducted in English. Registration is required. To sign up, please email bokasafn@kopavogur.is and indicate which date (July 9, July 16, July 23, July 30, August 6, or August 13) and time (2:00 PM or 3:00 PM) suits you best. When registering, please include a brief description of what you would like to make, mend, or alter and what project you plan to bring, so that the instructor can prepare for the session. Please use the subject line: For Alex - Sewing Lessons
14.08.2026 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs

Get together

A relaxed, welcoming gathering for refugees, applicants for international protection, immigrants, and anyone looking for connection and community. Get Together gatherings take place at the library in Kópavogur, on the first floor in the “Tilraunastofa” meeting room. Created in collaboration between GETA and the Library in Kópavogur, these international gatherings offer a warm space to meet others, share stories, and spend time together. Each week, we gather and do simple relaxing activities like painting, crafting, and more. Whether you come alone or with family, everyone is welcome  Free coffee and fruit are offered for all! These meet ups are sponsored by Vinnumálastofnun. Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi. Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs. Við munum bjóða upp á kaffi og með því! Þessi viðburður er styrktur af Vinnumálastofnun.
17.08.2026 kl. 14:30 - Salurinn

LESA - Opnunarhátíð

LESA opnunarhátíð!  Við bjóðum þér á opnunarhátíð LESA í Salnum í Kópavogi þann 17. ágúst. Komdu og kynnstu leiknum, hugmyndinni á bak við LESA og því hvernig lestur getur orðið að leik. Á dagskránni eru erindi frá fólki sem brennur fyrir lestri barna, meðal annars frá Kennarasambandi Íslands, MMS, Miðeind og 14islands og LESA. Vigdís Hafliðadóttir kynnir.  Húsið opnar kl. 14:30 og dagskrá hefst stundvíslega kl. 15:00–16:00. Salurinn, Kópavogi Frítt inn en skráning er nauðsynleg þar sem pláss er takmarkað Skráðu þig hér: www.lesa.app/is/utgafuvidburdur Börn eru að sjálfsögðu velkomin og verður LESA varningur á staðnum. Við hlökkum til að sjá þig!
18.08.2026 kl. 13:00 - Bókasafn Kópavogs

Ævintýrabókamerki

Komdu og föndraðu ævintýraleg origami-bókamerki. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Allar ævintýrasmiðjur verða haldnar í barnadeild á 1. hæð aðalsafns. Aðrar ævintýrasmiðjur Miðvikudag 19. ágúst 13:00-15:00 | Ævintýrafiðrildi og kort Fimmtudag 20. ágúst 13:00-15:00 | Ævintýrakórónur og eldflaugar
18.08.2026 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs
19.08.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Sumarsmiðjur á aðalsafni og Lindasafni

Alla miðvikudaga í sumar bjóðum við á Bókasafni Kópavogs og Náttúrusafni upp á sumarsmiðjur frá kl. 14:00 til 17:30, þar sem dýr og náttúra verða í sviðsljósinu. Komdu og búðu til dýragrímur, dýrafígúrur, litaðu skemmtilegar söguhetjur eða taktu þátt í lista- og náttúrusmiðjum. Smiðjurnar verða rúllandi og mun hver smiðja bjóða upp á eitthvað af ofantöldu. Þá verður umhverfisofurhetjan í gangi í allt sumar þar sem börn geta leyst umhverfistengd verkefni og fengið verðlaun. Sumarlesturinn verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Gúnda geit.
19.08.2026 kl. 13:00 - Bókasafn Kópavogs

Ævintýrafiðrildi og kort

Komdu og búðu til flögrandi fiðrildi eða skemmtileg kort. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Allar ævintýrasmiðjur verða haldnar í barnadeild á 1. hæð aðalsafns. Aðrar ævintýrasmiðjur Þriðjudag 18. ágúst 13:00-15:00 | Ævintýrabókamerki Fimmtudag 20. ágúst 13:00-15:00 | Ævintýrakórónur og eldflaugar
19.08.2026 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
Fleiri viðburðir