Meginmarkmið akstursþjónustu fyrir eldra fólk í Kópavogi er að stuðla að auknu félagslegu sjálfstæði og er fyrir 67 ára og eldri sem búa í heimahúsi.

Sækja þarf um akstursþjónustu rafrænt í gegnum þjónustugátt eða skila inn skriflegri umsókn í þjónustuver.

Nánari upplýsingar má fá í þjónustuveri Kópavogsbæjar í síma 441 0000.

Farþegar með samþykkta akstursþjónustu panta bíl í síma 515 2720 hjá Teiti ehf sem sér um aksturinn. Hægt að hringja og panta bíl milli klukkan 8 og 16 á virkum dögum og milli klukkan 10 og 14 um helgar. Einnig má panta bíl með tölvupósti á netfangið ferd@teitur.is

Akstursþjónustan er í boði:
Virka daga frá kl. 6:30 til kl. 24:00.
Laugardaga frá kl. 8:00 til kl. 24:00.
Sunnudaga frá kl. 11:00 til kl. 24:00.
Akstur á stórhátíðardögum er auglýstur sérstaklega.

Afpanta þarf bíl með meira en 2ja klukkustunda fyrirvara.

Gjald er innheimt með gíróseðli um hver mánaðarmót og nálgast má gjaldskrá hér fyrir neðan.

Gjaldskrár

Akstursþjónustur

Prenta gjaldskrá

Gildir frá janúar 2026

Akstursþjónusta eldra fólks
Verð
1 - 16 ferðir á mánuði
673 kr hver ferð
Hver ferð umfram 16 ferðir á mánuði
1.346 kr hver ferð
Samdægursgjald ef ekki er pantað fyrir klukkan 16.00 daginn áður
1.000 kr hver ferð

Akstursþjónusta fólks með fötlun

Hægt er að kaupa árskort og sex mánaða kort. Kortið gildir aðeins fyrir fasta ferð sem mætt er í.

Útskýring: Föst ferð eða ferðir eru þær sem eru pantaðar á meðan þjónustuver akstursþjónustu er opið, með a.m.k dags fyrirvara, það er fyrir kl. 16.00 daginn áður virka daga og 14.00 um helgar.

  • Kortið gildir ekki1 fyrir ferðir sem ekki er mætt í.
  • Kortið gildir ekki fyrir ferðir sem eru pantaðar samdægurs eða eftir að þjónustusíma Teits lokar daginn áður.2

1. Afpanta þarf með allavega 2ja tíma fyrirvara á meðan þjónustuver Teits er opið annars er innheimt fyrir ferðina sérstaklega.
2. Þær ferðir bera alltaf „samdægursgjald“ krónur 1000 krónur er leggst við verð ferðar og er ekki innifalið í áskriftarkorti).

Akstursþjónusta fólk með fötlun
Verð
1/2 strætófargjald
345 kr hver ferð
Samdægursgjald ef ekki er pantað fyrir kl. 16.00 daginn áður
1.000 kr hver ferð
Árskort 12 mánaða
36.000 kr
Sex mánaða kort
21.600 kr

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar má fá hjá velferðarsviði í tölvupósti eða í síma 441 0000.