Kópavogur hefur hlotið viðurkenningu UNICEF sem barnvænt sveitarfélag.
Þann 27. maí 2021 fékk Kópavogsbær afhenta viðurkenningu í tilefni þess að bærinn hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kópavogsbær er þar með kominn í í alþjóðlegan hóp barnvænna sveitarfélaga og var eingöngu annað sveitarfélagið á Íslandi til að komast í þann hóp.
Viðurkenningin kom í kjölfar þriggja ára umfangsmikillar vinnu, en þann 22. maí 2018 samþykkti bæjarstjórn Kópavogs að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Vinnan fólst í 18 aðgerðum, þar sem stýrihópur, með þátttöku barna og ungmenna, vann að innleiðingunni, þar sem lögð var áhersla á að vinna með grunnstoðir Barnasáttmálans. Grunnstoðirnar eru: 2. greinin sem fjallar um jafnræði og enga mismunun, 3. greinin sem fjallar um að við gerum ávallt það sem barni fyrir bestu, 6. greinin sem fjallar um rétt barns til að lifa og þroskast, 12. greinin sem fjallar um rétt barns til að tjá sig. Aðgerðaráætlunin var kynnt á samráðsgátt og opið var fyrir athugasemdir íbúa haustið 2019. Þá var hún send til kynningar og umsagnar hjá nefndum og ráðum bæjarins. Í framhaldinu fóru allar aðgerðirnar í ítarlegri vinnu meðal sérfræðinga úr starfsliði Kópavogsbæjar sem sá um innleiðingarferlið í þverfaglegri samvinnu.
Viðhald viðurkenningar sem barnvænt sveitarfélag
Kópavogur heldur áfram metnaðarfullri vinnu sinni til að viðhalda viðurkenningu UNICEF. Ný aðgerðaráætlun er í vinnslu í samstarfi við UNICEF á Íslandi og fylgir ákveðinni forskrift í átta liðum og gera má ráð fyrir að taki tvö ár. Sextán manna stýrihópur skipaður börnum og ungmennum, fulltrúum sviða bæjarins og fulltrúum bæjarstjórnar vinnur áfram fyrstu drög að nýrri aðgerðaráætlun sem byggir á fyrirliggjandi opinberum gögnum um stöðu, heilsu og líðan barna í Kópavogi auk þess að taka mið af skoðunum barna og ungmenna í sérstakri könnun bæjarins, úr rýnihópasamtölum og fleiru.
Barnvænt sveitarfélag
Barnvænt sveitafélag er bær, borg eða samfélag sem stýrt er af sveitar- eða bæjarstjórn þar sem markmiðið er að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til réttinda barna s.s. við gerð stefnu, verkefna eða við aðra ákvarðanatöku. Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities (CFC) en það hefur verið innleitt í fjölda sveitarfélaga víðsvegar um heim
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna varð að lögum árið 1990 en allar þjóðir heims – að undanskildum Bandaríkjunum – hafa samþykkt sáttmálann sem samanstendur af 54 greinum um réttindi barna. Barnasáttmálinn var fullgiltur fyrir Íslands hönd árið 1992 en fullgilding hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði sáttmálans. Barnasáttmálinn var lögfestur hér á landi 2013 og er nú hluti af íslenskri löggjöf.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins
Barnasáttmálinn á barnvænu máli