Í samræmi við samþykkt bæjarráðs 6. júlí 2023 tekur gjaldskráin breytingum fjórum sinnum á ári. Breytingar hverju sinni taka mið af þróun á undirliggjandi vísitölum.
Leikskólagjöld eru innheimt frá og með þeim degi sem vistun barns hefst, óháð aðlögunartíma. Nánari upplýsingar um innritun og fleira má finna í reglum um innritun leikskóla.
Gjaldskrá tekur gildi 1. maí 2026
Fæðisgjöld
Dæmi um dvalargjöld með afslætti og fæði
Tekjutengdir afslættir
Hægt er að sækja um tekjutengdan afslátt á umsóknarvef. Umsókn um afslátt þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt. Frekari upplýsingar um tekjutengdan afslátt er að finna í reglum um tekjutengdan afslátt.
Starfmannaafsláttur
Starfsfólk í leikskólum í 75% eða hærra starfshlutfalli á rétt á 40% starfsmannaafslætti.
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur reiknast ofan á tekjutengdan afslátt þegar við á.
Systkinaafsláttur fer eftir fjölda yngri systkina. Systkinaafsláttur hækkar, frá 1.október 2025, úr 30% í 50% af dvalargjaldi ef barn á eitt yngra systkini, en 100% af dvalargjaldi ef barn á tvö yngri systkini eða fleiri í leikskóla eða í dvöl hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast ofan á aðra afslætti. Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjöldum. Ekki þarf að sækja um systkinaafslátt.
Hægt er að skoða leikskólagjöld útfrá mismunandi fjölda dvalartíma og afsláttum í reiknivél leikskólagjalda. Hægt er að skoða alla reikninga undir Gjöld í þjónustugátt.
Almennt gjald
Tekjutengdir afslættir
| Einstæðir | Í sambúð | |||
| Tekjuviðmið | Afsláttur | Tekjuviðmið | Afsláttur | |
| 0 kr. - 558.129 kr. | 50% | 0 kr. - 800.794 kr. | 50% | |
| 558.130 kr. - 909.994 kr. | 40% | 800.795 kr. - 1.189.060 kr. | 40% | |
| 909.995 kr. - 958.528 kr. | 30% | 1.189.061 kr. - 1.237.592 kr. | 30% | |
|
958.529 kr. - 1.007.059 kr. |
20% | 1.237.593 kr. - 1.286.124 kr. | 20% | |
|
1.007.060 kr. - 1.055.592 kr. |
10% | 1.286.125 kr. - 1.334.658 kr. | 10% |
Hægt er að sækja um tekjutengdan afslátt á umsóknarvef. Umsókn um afslátt þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt. Frekari upplýsingar um tekjutengdan afslátt er að finna í reglum um tekjutengdan afslátt.
Starfmannaafsláttur
Starfsfólk í leikskólum í 75% eða hærra starfshlutfalli á rétt á 40% starfsmannaafslætti.
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur reiknast ofan á tekjutengdan afslátt þegar við á.
Systkinaafsláttur fer eftir fjölda yngri systkina. Systkinaafsláttur hækkaði, frá 1.október 2025, úr 30% í 50% af dvalargjaldi ef barn á eitt yngra systkini, en 100% af dvalargjaldi ef barn á tvö yngri systkini eða fleiri í leikskóla eða í dvöl hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast ofan á aðra afslætti. Ekki er veittur afsláttur af fæðisgjöldum. Ekki þarf að sækja um systkinaafslátt.
Hægt er að skoða leikskólagjöld útfrá mismunandi fjölda dvalartíma og afsláttum í reiknivél leikskólagjalda. Hægt er að skoða alla reikninga undir Gjöld í þjónustugátt.