Umhverfisviðurkenningar

Ertu með auga fyrir umhverfinu?

Kópavogsbær óskar eftir tilnefningum frá íbúum um hver skal hljóta viðurkenningu ársins 2026. Viðurkenningarnar eru veittar af Skipulags- og umhverfisráði.

Hægt er að tilnefna einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök, sem og einstök hús, fjölbýli eða lóðir, sem hafa skarað fram úr í að bæta umhverfi sitt og annarra. Meðal flokka sem veitt er viðurkenning fyrir eru umhirða húss og lóðar, endurgerð húsnæðis, frágangur lóðar, hönnun og framlag til umhverfismála.

Hægt er að skoða fyrri viðurkenningarhafa hér.

Getur verið heimilisfang, einstaklingur, félagssamtök eða annað.
Stuttur rökstuðningur þarf að flylgja hér.