Bæjarráð

3256. fundur 21. maí 2026 kl. 08:15 - 08:48 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Jóhanna Pálsdóttir Gestur, sat fundinn í hans stað.
  • Helga Jónsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Thelma Bergmann Árnadóttir Gestur, sat fundinn í hans stað.
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Ýmis erindi

1.26051395 - Jöfnunarsjóður, Tónlistarskólar 2025-2026

Frá Jöfnunarstjóði sveitarfélaga, dags. 06.05.2026, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir upplýsingum vegna framlaga til eflingar tónlistarnáms.
Lagt fram. Vísað til forstöðumanns menningarmála til afgreiðslu.

Ýmis erindi

2.26051898 - Heiðarhvarf 1-3 og 9-11. Kvörtun vegna tafa á afhendingu lóða, villandi uppl. og fyrri málsmeðferðar

Frá Fagmóti ehf., dags. 11.05.2026, lagt fram erindi vegna tafa á afhendingu lóða.
Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

Ýmis erindi

3.26051917 - Landsþing og landsþingsfulltrúar 2026

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 11.05.2026, lagt fram erindi varðandi tilnefningar kjörinna fulltrúa á landsþingsfulltrúum.
Lagt fram.

Ýmis erindi

4.26052906 - Bókun 628. fundar stjórnar SSH. Sérskóli á höfuðborgarsvæðinu - viljayfirlýsing

Frá SSH., dags. 15.05.2026, lögð fram bókun varðandi sérskóla á höfuðborgarsvæðinu ásamt fylgigögnum.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

5.2605006F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 443. fundur frá 08.05.2026

Fundargerð í 28 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

6.2604033F - Ungmennaráð - 58. fundur frá 04.05.2026

Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

7.2604014F - Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 12. fundur frá 07.05.2026

Fundargerð í 33 liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

8.2605008F - Velferðar- og mannréttindaráð - 17. fundur frá 08.05.2026

Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

9.2605001F - Skipulags- og umhverfisráð - 29. fundur frá 18.05.2026

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
  • 9.2 26022205 Marbakkabraut 38. Byggingarleyfisumsókn.
    Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 38 við Marbakkabraut. Sótt er um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu, einbýlishúsi á einni hæð að hámarki 143,3 m² að flatarmáli, á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrir eru á lóðinni tvö einbýlishús. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,19 í 0,27. Fyrirkomulag bílastæða breytist og þeim fjölgar úr tveimur í fjögur. Uppdrættir dags. 12. mars 2026 og 23. mars 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 27. mars til 4. maí 2026. Einnig er lögð fram athugasemd sem barst á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026.
    Elín Mjöll Lárusdóttur verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 29 Fundarhlé kl. 15:37, fundi framhaldið kl. 16:14.

    Andrés Pétursson tók sæti á fundinum kl. 15:50.

    Bókun:
    „Undirrituð taka undir óskir íbúa að Kópavogsbær geri deiliskipulag fyrir Marbakkabraut 38. Í deiliskipulagsgerðinni skal taka tillit til þeirra þátta sem koma fram í innsendum athugasemdum.“
    Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Andrés Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.

    Bókun:
    „Í umsögn skipulagsfulltrúa kemur skýrt fram að umsóknin telst samræmast Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040, landnotkun, byggðarmynstri og þéttleika byggðar á svæðinu og að ekki sé talin þörf á formlegri deiliskipulagsgerð.
    Að mati meirihlutans liggja því ekki fyrir forsendur sem kalla á sérstaka deiliskipulagsgerð í þessu máli, enda er framkvæmdin innan þeirra marka sem Aðalskipulag Kópavogs gerir ráð fyrir hvað varðar nýtingarhlutfall, umfang og yfirbragð byggðar.“
    Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

    Tillaga Hákonar Gunnarssonar, Helgu Jónsdóttur, Andrésar Péturssonar og Indriða Inga Stefánssonar að afgreiðslu málsins:
    „Skipulagsskylda hvílir á sveitarfélögum og í deiliskipulagi er m.a. lagt mat á svipmót einstakra bygginga til þess að gæta heildarsamræmis. Spurningar íbúa lúta ekki síst að framkvæmdatíma og hagsmunum íbúa af því að koma að sjónarmiðum. Aðalskipulag er almennt en deiliskipulag er sértækt. Því leggja undirrituð til að Kópavogsbær sjálfur geri deiliskipulag að Marbakkabraut 38.“

    Hafnað með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar.

    Framlögð byggingarleyfisumsókn samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2026 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 9.3 26032451 Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 29 Samþykkt með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi dags. 16. mars 2026 verð auglýst með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Andrés Pétursson, Helga Jónsdóttir og Hákon Gunnarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

10.26051885 - Fundargerð 280. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 17.04.2026

Fundargerð 280. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 17.04.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11.26052662 - Fundargerð 146. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 08.05.2026

Fundargerð 146. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 08.05.2026.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.26052956 - Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.05.2026

Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.05.2026.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

13.26053218 - Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Vina Kópavogs og Samfylkingar um að fela forsætisnefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um upplýsingamiðlun, auglýsingar og samfélagsmiðlanotkun

Frá bæjarfulltrúum Pírata, Viðreisnar, Vina Kópavogs og

Samfylkingu, lögð fram svohljóðandi tillaga:

Bæjarráð samþykkir að fela forsætisnefnd að vinna tillögu að verklagsreglum um

upplýsingamiðlun, auglýsingar og samfélagsmiðlanotkun Kópavogsbæjar. Markmið

reglnanna verði að tryggja hlutleysi, jafnræði og fagleg vinnubrögð í allri miðlun

sveitarfélagsins og koma í veg fyrir að opinberir miðlar, auglýsingafé eða framleiðsla efnis á vegum bæjarins nýtist með beinum eða óbeinum hætti til kynningar á einstökum frambjóðendum, listum eða stjórnmálaflokkum í aðdraganda kosninga.
Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til forsætisnefndar.

Fundi slitið - kl. 08:48.