Dagskrá
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
1.2607668 - Aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins - kynning
Frá SSH. dags. 07.07.2026, lögð fram til samþykktar aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030. Óskað er eftir því að áætlunin verði tekin til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar á vettvangi sveitarfélagsins. Til upplýsinga er einnig meðfylgjandi minnisblað til stjórnar SSH dagsett 16. júní 2026. Þá er þess óskað að við fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027 verði tekið tillit til þess kostnaðar sem áætlað er að leggist á sveitarfélagið, sbr. 4. gr. samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um svæðisbundið farsældarráð á höfuðborgarsvæðinu.
Gestir
- Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:15
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs - mæting: 08:15
- Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins - mæting: 08:15
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir skrifstofustjóri velferðarsviðs - mæting: 08:15
- Amanda K. Ólafsdóttir skrifstofustjóri menntasvið - mæting: 08:15
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
2.26081099 - Reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
Á fundi bæjarráðs þann 18.06.2026 var málið tekið til umræðu og lagðar fram bókanir. Nú rætt að nýju og kynnt.
Gestir
- Arnar Þór Sævarsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga - mæting: 08:55
- Sigrún Þórarinssdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:55
- Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga - mæting: 08:55
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum
3.26081077 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 - Aðildarviðræður við Evrópusambandið
Frá yfirkjörstjórn, dags. 17.08.2026, lagt fram erindi varðandi framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer þann 29. ágúst.
Ýmis erindi
4.26071073 - Erindi til bæjarráðs um illa lagðar rafskútur
Frá Erlendi Smára Þorsteinssyni, dags. 20.07.2026, lagt fram erindi varðandi rafskútur í bæjarlandinu.
Fundargerðir nefnda
5.2607018F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 448. fundur frá 17.07.2026
Fundargerðir nefnda
6.2607024F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 449. fundur frá 31.07.2026
Fundargerðir nefnda
7.2608008F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 450. fundur frá 14.08.2026
Fundargerðir nefnda
8.2608004F - Innkaupanefnd - 18. fundur frá 10.08.2026
Fundargerð í þremur liðum.
Fundargerðir nefnda
9.2608007F - Menntaráð - 163. fundur frá 18.08.2026
Fundargerð í fjórum liðum.
Fundargerðir nefnda
10.2607011F - Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur frá 17.08.2026
Fundargerð í 13 liðum.
10.5
26032451
Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 32
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.6
26042448
Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 32
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.10
26012129
Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.
Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 32
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Niðurstaða
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Erindi frá bæjarfulltrúum
11.2607819 - Erindi bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi innviðaframkvæmdir á Vatnsendabletti
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags.12.07.2026, lagt fram erindi varðandi innviðaframkvæmdir á Vatnsendabletti.
Erindi frá bæjarfulltrúum
12.26071075 - Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg
Frá bæjarfulltrúa Miðflokks, dags. 18.07.2026. lögð fram tillaga um fullmislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og Arnarnesveg,
Erindi frá bæjarfulltrúum
13.26081190 - Tillaga bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar um skipun samráðsvettvangs
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, dags. 18.08.2026, lögð fram tillaga um skipun samráðsvettvangs vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Fundi slitið - kl. 12:25.
Gestir viku af fundi kl.8:49.
Bæjarráð vísar aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 til afgreiðslu bæjarstjórnar.