Bæjarstjórn

1339. fundur 12. maí 2026 kl. 16:00 - 18:50 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Ásdís Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson, aðalmaður boðaði forföll og Bergur Þorri Benjamínsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Jóhanna Pálsdóttir varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Bergljót Kristinsdóttir aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Indriði Ingi Stefánsson varamaður, sat fundinn í hans stað.
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Dagskrármál

1.26041154 - Ársreikningur Kópavogsbæjar 2025 - seinni umræða

Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2025 til seinni umræðu.
Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning A-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Tónlistarhúss Kópavogs. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Bílastæðasjóðs Kópavogs. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning B-hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og sögu ehf. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn ársreikning Kópavogsbæjar, þ.e. ársreikning Kópavogsbæjar, A- og B-hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B-hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Staðfestur með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Jóhönnu Pálsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Bókun:
"Ársreikningur Kópavogsbæjar sýnir að hefðbundnar rekstrartekjur standa ekki undir rekstrarútgjöldum og munar þar yfir 400 m.kr. Afgangur ársins skýrist fyrst og fremst af sölu byggingarréttar, sem er einskiptistekjulind og verður ekki endurtekin. Á kjörtímabilinu hafa tekjur af sölu byggingarréttar numið yfir 10 milljörðum króna, en ekki má búast við sambærilegum eignasölutekjum á næstu árum.

Á sama tíma stóraukast skuldbindingar bæjarins jafnt í fjárfestingum sem rekstri. Langtímaskuldir bæjarins nema nú 31,2 milljörðum króna. Af þeirri fjárhæð greiðast aðeins 4,6 milljarðar upp fyrir árið 2030. Ný markaðsbréf að fjárhæð 5,4 milljarðar verða ekki að fullu greidd upp fyrr en árið 2055 og önnur að fjárhæð 7,5 milljarðar árið 2040. Flest lán bæjarins bera háa óbreytanlega vexti og verðtryggingu.

Þrátt fyrir þessa miklu skuldsetningu hefur heildstæð fjárfestingaráætlun aldrei verið lögð fyrir bæjarráð. Þannig hefur kostnaður sem greiða verður upp á komandi kjörtímabilum aldrei verið ræddur í bæjarráði og settur í samhengi við nauðsynlega uppbyggingu á kjörtímabilinu. Með þessari langtímaskuldsetningu hefur framkvæmdageta bæjarsjóðs verið bundin til allt að 30 ára, án þess að fyrir liggi hvaða áhrif það mun hafa á nauðsynlega framtíðaruppbyggingu bæjarins."

Kolbeinn Reginsson
Helga Jónsdóttir
Indriði I. Stefánsson
Jóhanna Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:
"Afkoma ársins er ein sú besta í 18 ár. Heildarskuldir hafa lækkað um 11% á kjörtímabilinu og skuldahlutfallið farið úr 86% í 68% og hvergi á höfuðborgarsvæðinu hefur skuldahlutfall lækkað meira á síðustu fjórum árum. Á árinu 2025 voru engin lán tekin þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í leik- og grunnskólum. Reksturinn skilar 5 milljörðum króna eftir að leiðrétt hefur verið fyrir einskiptistekjum eins og lóðasölu. Þá er mikilvægt að árétta að tekjur af lóðasölu eru alls ekki notaðar til rekstrar heldur til fjárfestingar innviða og niðurgreiðslu skulda.

Ávinningi af góðum rekstri hefur verið skilað í formi lægri skatta en fasteignagjöld hafa lækkað að raunvirði á kjörtímabilinu og eru þau lægstu á höfuðborgarsvæðinu."

Orri V. Hlöðversson
Ásdís Kristjánsdóttir
Björg Baldursdóttir
Andri S. Hilmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Bergur Þorri Benjamínsson

Önnur mál fundargerðir

2.2604023F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 442. fundur frá 24.04.2026

Fundargerð í 15 liðum.
Fundarhlé hófst kl. 17:45, fundi fram haldið kl. 18:43

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 9 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Kolbeini Reginssyni.

Önnur mál fundargerðir

3.2604016F - Bæjarráð - 3254. fundur frá 30.04.2026

Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
  • 3.4 26031182 Sveitarstjórnarkosningar 2026
    Frá lögfræðiþjónustu, lagður fram starfsmannalisti undirkjörstjórna, auk staðsetningar kjörstaða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026. Niðurstaða Bæjarráð - 3254 Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan lista starfsmanna undirkjörstjórna.

Önnur mál fundargerðir

4.2604031F - Bæjarráð - 3255. fundur frá 07.05.2026

Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
  • 4.4 26031602 Vatnsendahvarf, lóðarúthlutun
    Frá umhverfissviði, tillaga að úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi. Niðurstaða Bæjarráð - 3255 Bæjarráð vísar framlögðum tillögum að lóðaúthlutunum og til afgreiðslu bæjarstjórnar með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Jóhönnu Pálsdóttur. Niðurstaða Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Bergljótar Kristinsdóttur, Indriða I. Stefánssonar og Jóhönnu Pálsdóttur framlagðar tillögur að lóðarúthlutunum.

Önnur mál fundargerðir

5.2605005F - Forsætisnefnd - 254. fundur frá 07.05.2026

Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.2604020F - Menntaráð - 161. fundur frá 21.04.2026

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.2604026F - Skipulags- og umhverfisráð - 28. fundur frá 04.05.2026

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
  • 7.3 2602358 Dalsmári 9-11. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju umsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts dags. 3. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-11 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 3.780 m² lóðarstækkun til norðurs og 4.000 m² nýbygging á tveimur hæðum sem tengist núverandi húsnæði á lóð með tengigangi. Lóðarstækkunin fer að hluta til yfir á svæði með landnotkun skilgreinda í aðalskipulagi sem opið svæði, OP-221, en er að öðru leiti innan íþróttasvæðis, ÍÞ-4. Tillagan leggur undir sig núverandi útitennisvelli og útivistarsvæði. Uppdrættir dags. 3. mars 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 28 Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir synjun skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

8.2604028F - Innkaupanefnd - 17. fundur frá 04.05.2026

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.26042909 - Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22.04.2026

Fundargerð 436. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.26043276 - Fundargerð 44. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.04.2026

Fundargerð 44. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.26043125 - Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.04.2026

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

12.26042915 - Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH frá 20.04.2026

Fundargerð 626. fundar stjórnar SSH.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

13.26042473 - Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 10.04.2026

Fundargerð 145. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

14.26043367 - Fundargerð 437. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 29.04.2026

Fundargerð 437. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 18:50.