Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

45. fundur 11. maí 2026 kl. 13:00 - 15:07 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
Dagskrá
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Elín Mjöll Lárusdóttir, Freyr Snorrason, Ester Anna Ármannsdóttir og Kristjana H. Kristjánsdóttir.

Almenn erindi

1.25062107 - Skemmuvegur 46. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kristins Más Þorsteinssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 46 við Skemmuveg. Sótt er um byggingarleyfi fyrir 252 m² viðbyggingu við suðurhluta núverandi iðnaðarhúss á lóðinni. Fyrirhuguð viðbygging er í sömu hæð og núverandi iðnaðarhús, er á tveimur hæðum auk millilofts og með reistu þaki. Við breytinguna eykst byggingarmagn úr 1.226 m² í 1.478 m² og nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,82 í 1,0. Fyrirkomulag bílastæða breytist og afmörkun lóðar breytist á suðvesturhorni lóðar. Lóð minnkar um 19,27 m², úr 1.488 m² í 1.468,73 m². Mæliblað fyrir lóðina verður uppfært.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgeiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

2.2511496 - Örvasalir 26. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Kjartans Ólafs Sigurðssonar byggingafræðings dags. 7. nóvember 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 26 við Örvasali um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni er 221,1 m² einbýlishús. Í breytingunni felst að óútgrafið rými undir húsinu, alls 49,2 m², verður gerður að íbúðarrými. Leyfilegt hámarksflatarmál hússins á lóðinni verður því 270,3 m². Stækkunin er innan byggingarreits. Ekki eru gerðar breytingar á ytra byrði hússins. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. mars til 13. apríl 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.

Almenn erindi

3.26032469 - Digranesheiði 31. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 13. mars 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 31 við Digranesheiði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um 17 m² viðbyggingu ofan á bílskúr, breytingu á innra skipulagi efri hæðar og að breyta bílskúr í stúdíó íbúð. Uppdrættir dags. 14. desember 2020, uppfærðir 3. júlí 2026. Embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var byggingarleyfisumsókninni vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026, samþykkt.

Almenn erindi

4.26042315 - Bergsmári 2. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Bergsmára dags. 17. apríl 2026 um að kantsteinn fyrir framan húsið verði fjarlægður að hluta til. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. apríl 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026, samþykkt.

Almenn erindi

5.26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

6.2604666 - Hafnarbraut 13A. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 13A við Hafnarbraut dags. 7. apríl 2026 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að breyta skráningu eignarhluta 0103 úr skrifstofurými í íbúð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 11. maí 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.

Almenn erindi

7.26041117 - Stöðvarhvarf 5-7 og 9-11. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Antons Svans Guðmundssonar arkitekts dags. 9. apríl 2026 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðunum nr. 5-7, 9-11 við Stöðvarhvarf. Í fyrirspurninni er m.a. óskað eftir heimild til að hækka hámarksstærð íbúða í 225 m², með tilheyrandi áhrifum á nýtingarhlutfall lóðanna, auk undanþága frá gildandi deiliskipulagsskilmálum varðandi útfærslu svala og þakkanta. Þá er jafnframt óskað eftir heimild til léttrar bílskúrsbyggingar á lóð og breytingu á hæðarsetningu lóðanna Stöðvarhvarfs 5 og 7. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 11. maí 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.

Almenn erindi

8.26043168 - Dalvegur 30 og 30A. Breytt aðkoma.

Lagt fram erindi lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 og 30A við Dalveg dags. 27. apríl 2026 um breytta aðkomu lóðarinnar. Uppdráttur dags. 17. apríl 2026. Jafnframt lögð fram umsögn deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. maí 2026.
Með vísan til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. maí 2026 eru ekki gerðar athugasemdir við að sótt verði um framkvæmdaleyfi.

Almenn erindi

9.26043198 - Dimmuhvarf 9. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Stefáns Snæs Ágústssonar dags. 28. apríl 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 9 við Dimmuhvarf. Í breytingunni felst að á lóðinni verði byggt parhús í stað einbýlishúss.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

10.26043324 - Melgerði 14. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Melgerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um byggja yfir verönd framan við forstofu og taka niður burðarvegg í eldhúsi og stofu. Uppdrættir dags. 15. desember 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

11.26043335 - Holtagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 24. apríl 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 26 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa sem munu styðja undir nýjar svalir efri hæðar. Uppdrættir dags. 10. júní 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

12.26043337 - Lómsalir 13. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Lómasali dags. 29. apríl 2026 um að setja svalalokunarkerfi á jarðhæð, undir svalirnar sem eru á 2. hæð.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

13.25102713 - Nýtt Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040.

Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðs dags. 7. maí 2026 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags.

Fundi slitið - kl. 15:07.