Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

48. fundur 08. júní 2026 kl. 13:00 - 14:33 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Steinn Sigríðar Finnbogason lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
Dagskrá
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Freyr Snorrason, Kristjana H. Kristjánsdóttir, Elín Mjöll Lárusdóttir og Ester Anna Ármannsdóttir.

Almenn erindi

1.26043337 - Lómasalir 13. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Lómasali dags. 29. apríl 2026 um að setja svalalokunarkerfi á jarðhæð, undir svalirnar sem eru á 2. hæð. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026, samþykkt.

Almenn erindi

2.26051934 - Fossvogsbrún 2. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Sveins Ívarssonar arkitekts dags. 11. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Fossvogsbrún um stækkun bílskúrs á lóðinni um 54 m², úr 40 m² í 94 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,23 í 0,28. Uppdrættir dags. 4. mars 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.

Almenn erindi

3.26051993 - Kastalagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Kastalagerði er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að framlengja valmaþak yfir bílskúrs og að hækka bílskúrsveggi upp í nýtt þak. Uppdrættir dags. 23. desember 2025, uppfærðir 4. febrúar 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026 að framlögð byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 1, 2, 3, 5 og 6 við Kastalagerði, nr. 18 við Borgarholtsbraut og nr. 7 og 7A við Urðarbraut.

Almenn erindi

4.26051989 - Sunnubraut 29. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými og verði hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækkaðir og hurðum bætt við. Hæð hússins helst óbreytt og ekki er verið að breyta hæð lóðarmarka. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2026 að framlögð byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 27 og 31 við Sunnubraut.

Almenn erindi

5.26023503 - Dofrakór 1. Breytt deiliskipulag

Lögð fram umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts dags. 27. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór um breytingu á deiliskipulagi. Í gildi er deiliskipulag Hörðuvalla, samþykkt í bæjarráði Kópavogs 24. júlí 2003 m.s.br. Lóðin er á svæði 7, reit 1. Í breytingunni felst að byggingarreitur á austurhluta núverandi húss stækkar og komið verði fyrri viðbyggingu á einni hæð með þaksvölum að hámarki 59,5 m² að flatarmáli með tengingu við núverandi íbúð. Komið er fyrir nýrri útidyrahurð á efri hæð með tengingu við þaksvalir. Sótt er um 103 m² lóðarstækkun til austurs yfir bæjarland og að fallið verði frá áður samþykktri deiliskipulagsbreytingu samþykkt í bæjarráði 3. apríl 2008 um stækkun byggingarreits til norðausturs fyrir garðskýli á einni hæð. Uppdrættir dags. 3. júní 2026.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

6.26054610 - Dalsmári 1. Smáraskóli. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn umhvefissviðs dags. 28. maí 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Dalsmára. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir núverandi skólastofur stækkar til norðausturs um 19,7m x 22m svo hægt sé að koma fyrir færanlegri 135,1 m² skólastofu. Fyirirhuguð skólastofa er á einni hæð með flötu þaki. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 3.06 m. Uppdráttur dags. 4. júní 2026.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Dalsmára 1-7.

Almenn erindi

7.26053656 - Kópavogsbraut 20. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Gests Ólafssonar dags. 21. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Kópavogsbraut um tvær viðbyggingar við suður- og norðurhlið bifreiðageymslu, samtals 100,98 m² (brúttó). Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026, samþykkt.

Almenn erindi

8.26042504 - Hagasmári 3. Fyrirspurn.

Lögð fram að nýju fyrirspurn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 20. apríl 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Hagasmára um aukið byggingarmagn lóðarinnar með tveimur tveggja hæða viðbyggingum við núverandi inngang til vesturs á norðurturni. Byggingarmagn lóðarinnar myndi hækka um 1000 m², úr 18.195,3 m² í 19.195,3 m². Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 1,52 1,60. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. apríl 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig lögð fram umsögn dags. 26. maí 2026.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2026, samþykkt.

Almenn erindi

9.26054034 - Bergsmári 3. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 3 við Bergsmára dags. 26. maí 2026 um niðurtekt á kantsteini.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

10.2606114 - Vogatunga 22. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 22. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Björnssonar verkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 22 við Vogatungu er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að stækka suðursvalir raðhússins um 10 m². Uppdrættir dags. 12. maí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

11.2606306 - Lindasmári 39. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 39 við Lindasmára dags. 2. júní 2026 um að stækka núverandi sólpall út að lóðarmörkum.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

12.2606579 - Borgarlínan. Leggur 189. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Lögð fram umsögn Betri samganga ofh. dags. 5. júní 2026 um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerðarlegg 180.09 (189), Bakkabraut. Uppdrættir dags. 23. júní 2025 og uppdrættir dags. 1. desember 2025 uppfærðir 8. apríl 2026,
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

13.2606713 - Fjallalind 66. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsögn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 8. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 66 við Fjallalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 2m til vesturs sem nemur 25 m². Uppdrættir dags. 8. júní 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

14.25102713 - Nýtt Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040.

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðs dags. 7. maí 2026 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 11. maí 2025 var erindinu vísað til umsagnar.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Fundi slitið - kl. 14:33.