Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

50. fundur 13. júlí 2026 kl. 13:00 - 14:40 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Auður D. Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

Almenn erindi

1.26042448 - Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Betri Samgangna ohf. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Umsóknin var grenndarkynnt frá 6. júní til 2. júlí 2026, athugasemdir bárust.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

2.26051988 - Smiðjuvegur 11. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn G. Odds Víðissonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg. Sótt er um að byggja 27m² anddyri norðan megin við iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á lóð nr. 11 við Smiðjuveg (mhl. 01). Fyrirhuguð viðbygging verður nýr inngangur inn í verslunarrýmið, um leið verður fimm stórum gluggum lokað. Jafnframt verður bætt við milligólfi, samtals 400 m² viðbót. Uppdrættir dags. 30. október 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 8. júní til 8. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 4. tl. 3. gr. viðauka IV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

3.26054610 - Dalsmári 1. Smáraskóli. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn umhvefissviðs dags. 28. maí 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Dalsmára. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir núverandi færanlegar skólastofur stækkar til norðausturs um 19,7m x 22m svo hægt sé að koma fyrir nýrri 135,1 m² færanlegri skólastofu. Fyrirhuguð skólastofa er á einni hæð með flötu þaki. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 3,06 m. Uppdráttur dags. 4. júní 2026. Umsóknin var grenndarkynnt frá 11. júní til 12. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 3. tl. 3. gr. viðauka IV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

4.26061593 - Búðakór 1. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 5. júní 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Sigríðar Magnúsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Búðakór er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um stækkun á núverandi LED skilti á lóðinni, austurhliðin verður 5 m² stærri og vesturhliðin 2 m² stærri. Uppdrættir dags. 22. janúar 2026, uppfærðir 4. mars 2026 og 11. mars 2026 ásamt minnisblaði Ástu Logadóttur og Bjarka Más Sigmarssonar dags. 27. apríl 2026.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2026.

Almenn erindi

5.2606579 - Borgarlínan. Bakkabraut. Umsókn um framkvæmdaleyfi.

Lögð fram að nýju umsókn Betri samgangna ohf. dags. 5. júní 2026 um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð á legg 189, Bakkabraut, á norðanverðu Kársnesi frá og með gatnamótum Bakkabrautar og Vesturvarar að Fossvogsbrú. Uppdrættir dags. 23. júní 2025 og 1. desember 2025 uppfærðir 8. apríl 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn dags. 13. júlí 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. júlí 2026 og með vísan til 11. tl. 3. gr. viðauka IV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Útgáfu framkvæmdaleyfis er vísað til skrifstofu bæjarritara. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis áður en það er gefið út skv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

Almenn erindi

6.26063288 - Kópavogsbraut 64. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 64 við Kópavogsbraut dags. 30. júní 2026 um stækkun á núverandi bílageymslu á lóðinni og að henni verði breytt í íbúðarrými. Fyrirspurninni fylgja ódagsettar teikningar af fyrirhugaðri breytingu.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

7.2607205 - Dimmuhvarf 10. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Bjarna Óskars Þorsteinssonar arkitekts dags. 2. júlí 2026 f.h. Úlfsstaða ehf. um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Dimmuhvarf. Í breytingunni felst að núverandi hús á lóðinni verði rifið og að á lóðinni verði byggt einbýlishús og hesthús samtals 354 m². Uppdrættir dags. 2. júlí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

8.26062859 - Álftröð 1-7, Skólatröð 2-8 og Hávegur 2-4. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 19. júní 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ásgeirs Ásgeirssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1-7 við Álftröð, nr. 2-8 við Skólatröð og nr. 2-4 við Háveg er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um 13 m² svalalokun á hluta af þaksvölum íbúðar nr. 0504. Uppdrættir dags. 15. október 2021, uppfærðir 7. apríl 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

9.26062862 - Grænatún 8. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 8 við Grænatún dags. 24. júní 2026 um fjölgun bílastæða á lóðinni úr tveimur í fjögur og niðurtekt á kantsteini.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

10.2607072 - Vesturhluti Kársness, reitur 4. Stúdentagarðar. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Félagsstofnunar stúdenta dags. 1. júlí 2026 um fjögur fjögurra hæða hús með um 144 einstaklingsíbúðum fyrir stúdenta á reit 4 á Vesturhluta Kársness. Gert er ráð fyrir að íbúðir verði 29 m² auk sameiginlegra rýma, samtals 7.350 m². Fyrirspurninni fylgja skissur frá Andrúm arkitektum dags. í júlí 2026
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

11.2607300 - Hraunbraut 9. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 3. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristjáns Georgs Leifssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Hraunbraut er vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar eða ákvörðunar um grenndarkynningu. Sótt er um að byggja 108 m² viðbyggingu á tveimur hæðum með bílskúr á 1. hæð og stofu þar ofan á. Uppdrættir dags. 3. mars 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

12.2607765 - Austurkór 87. Fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 87 við Austurkór um að byggja 26,2 m² smáhýsi á lóð. Um er að ræða aukahús sem er ekki til búsetu.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

13.26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að lokinni grenndarkynningu umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Uppdrættir ásamt greinargerð dags. í febrúar 2026. Umsóknin var grenndarkynnt frá 20. maí til 21. júní 2026. Athugasemdir bárust.
Vísað til umsagnar.

Fundi slitið - kl. 14:40.