Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa

51. fundur 10. ágúst 2026 kl. 13:00 - 14:45 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Karlotta Helgadóttir starfsmaður umhverfissviðs
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
Dagskrá

Almenn erindi

1.26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu á tillaga Guðmundar Gunnleifssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni, auk lyftustokks á bakhlið hússins. Tillagan var auglýst frá 28. maí 2026 til 12. júlí 2026, athugasemdir bárust.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

2.26043324 - Melgerði 14. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Melgerði. Sótt er um að byggja viðbyggingu yfir verönd framan við forstofu og taka niður burðarvegg í eldhúsi og stofu, alls stækkun upp á 14,4 m². Uppdrættir dags. 15. desember 2025. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

3.26043335 - Holtagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Vigfúsar Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði. Sótt er um að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 25,5 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa til að styðja undir nýjar svalir á suð-austur hluta efri hæðar. Uppdrættir dags. 10. júní 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

4.26051989 - Sunnubraut 29. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými og verði hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækkaðir og hurðum bætt við. Hæð hússins helst óbreytt og ekki er verið að breyta hæð lóðarmarka. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

5.26051993 - Kastalagerði 4. Byggingarleyfisumsókn.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Kastalagerði. Sótt er um að framlengja valmaþak yfir bílskúr og að hækka bílskúrsveggi upp í nýtt þak. Uppdrættir dags. 25. desember 2008, uppfærðir 4. febrúar 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Almenn erindi

6.2606909 - Fagrahvarf 2-8. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Gunnars Loga Gunnarssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 2-8 við Fagraþing um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 1,65 m til suðurs til að koma fyrir 9 m² utanáliggjandi svölum. Uppdrættir ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. júlí til 7. ágúst 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.

Almenn erindi

7.26061073 - Dimmuhvarf 9. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 9. júní 2026 f.h. Stefáns Snæs Ágústssonar um breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 9 við Dimmuhvarf. Ekki hefur borist umboð frá lóðarhafa. Í breytingunni felst að byggja parhús í stað einbýlishúss og verður nýtingarhlutfallið 0,55, bílastæðum fjölgar og verða 3 per íbúð, tilfærsla á byggingareit og skipting á lóðinni í tvær lóðir. Uppdrættir dags. 9. júní 2026, uppfærðir 29. júní 2026 og 7. júlí 2026.
Vísað til skipulags- og umvherfisráðs.

Almenn erindi

8.2608364 - Álfhólsvegur 62. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að hækka þak og breyta útliti hússins. Uppdrættir dags. 12. nóvember 2023, uppfærðir 27. maí 2026 og skráningartafla dags. 12. nóvember 2023, uppfærð 20. maí 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

9.2608365 - Sunnubraut 6. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Sunnubraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta 26 m² bílskúr í vinnuherbergi. Uppdrættir dags. 1. júlí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

10.2608366 - Hlíðarhjalli 11. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ólafar Flygenring arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Hlíðarhjalla er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta notkun bílskúrs í íbúðarrými. Uppdrættir dags. 2. júlí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

11.2608367 - Nónhæð. Nónsmári 9-15. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Hrólfs Carls Cela arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9-15 við Nónsmára er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja þriðju hæð ofan á fjölbýlishús nr. 9-15 við Nónsmára, samtals 279 m². Uppdrættir dags. 25. mars 2023, uppfærðir 12. mars 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

12.2608368 - Álalind 4-8. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 17. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Orra Árnasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4-8 við Álalind er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um svalalokun og sólskála. Uppdrættir dags. 26. júní 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

13.2608370 - Kársnesbraut 65. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 31. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Ólafar Flygenring arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 65 við Kársnesbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að gera hurð í stað glugga í risi, svalir og þakglugga. Uppdrættir dags. 26. júní 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

14.2608371 - Huldubraut 9. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 31. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Jakobs Emils Líndal arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 9 við Huldubraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að bæta við bílastæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 30. júní 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

15.2608373 - Álfatún 14. Byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 31. júlí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helga S. Ólafssonar byggingarverkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 14 við Álfatún er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um lengingu þaks yfir svalir og þakskyggni yfir anddyri. Uppdrættir dags. 20. júlí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

16.2607908 - Hagasmári 1. LED skilti. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Helga Indriðasonar arkitekts dags. 15. júlí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Hagasmára um breytingu á skilmálum gildandi deiliskipulags. Í breytingunni felst viðbót við núgildandi skilmála í deiliskipulaginu sem snúa að notkun LED skilta á og við Smáralind. Skilmálarnir taka m.a. á staðsetningu, stærð, notkun og birtistigs. Engum eldri skilmálum yrði breytt. Uppdráttur dags. 1. júlí 2026 ásamt greinargerð frá Eflu dags. 12. desember 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Almenn erindi

17.2504623 - Stígakerfi - Breyting á 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 25. júní 2026 um tillögu að breytingu á ákvæðum 4. kafla í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem ná til stígakerfa. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Endurskoðun á kafla 4.2, tillaga dags. 11. júní 2026.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

Almenn erindi

18.26062847 - Salavegur 2. Fyrirspurn.

Lögð fram fyrirspurn Húsfélagsins lóðarinnar nr. 2 við Salaveg dags. 24. júní 2026 um stækkun lóðarinnar til að koma fyrir fleiri bílastæðum.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Fundi slitið - kl. 14:45.