Skipulags- og umhverfisráð

31. fundur 06. júlí 2026 kl. 15:30 - 17:38 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Hjördís Ýr Johnson formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson, aðalmaður boðaði forföll og Leifur Andri Leifsson varafulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir aðalfulltrúi
  • Guðmundur Jóhann Jónsson aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson aðalfulltrúi
  • Eydís Inga Valsdóttir aðalfulltrúi
  • Pétur Björgvin Sveinsson áheyrnarfulltrúi
  • Beitir Ólafsson áheyrnarfulltrúi
  • Sólveig Skaftadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Karlotta Helgadóttir fulltrúi skipulagsdeildar, f.h. skipulagsfulltrúa
Dagskrá

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

1.2606008F - Bæjarstjórn - 1342. fundur frá 23.06.2026

Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur frá 15.06.2026



26023503 - Dofrakór 1. Breytt deiliskipulag

Bæjarstjórn staðfestir synjun skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

2.2606011F - Bæjarráð - 3258. fundur frá 18.06.2026

Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur frá 15.06.2026



26023503 - Dofrakór 1. Breytt deiliskipulag

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

3.26033708 - Umhverfisviðurkenningar 2026

Lagt fram erindi verkefnastjóra umhverfismála f.h. umhverfissviðs, dags. 3. júlí 2026 um tilnefningar til umhverfisviðurkenninga í Kópavogi árið 2026.

Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.
Tillögur umhverfissviðs dags. 3. júlí 2026 samþykktar. Tillögu að götu ársins í Kópavogi 2026 er vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

4.2501990 - Arnarnesvegur. Milli Fífuhvammsvegar og Rjúpnavegar. Nýtt deiliskipulag.

Lögð fram til afgreiðslu tillaga umhverfissviðs að deiliskipulagi Arnarnesvegar frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi dags. 10. október 2025, uppfærð 24. júní 2026. Í breytingunni felst breyting gatnamóta við Salaveg þar sem er gert ráð fyrir hringtorgi. Einnig er gerð breyting á T-gatnamótum við Sólarsali til að bæta umferðarflæði og auka umferðaröryggi með fækkun skurðpunkta. Til framtíðar er miðað við að Arnarnesvegur geti á þessu svæði orðið fjögurra akreina vegur (2 - 2) og er hann sýndur þannig á uppdrætti. Tillagan er unnin af Eflu fyrir Kópavogsbæ og Vegagerðina. Tillagan var auglýst frá 18. nóvember 2025 til 13. janúar 2026. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 var athugasemdum sem bárust á kynningartíma vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2026, uppdrætti dags. 10. október 2025, uppfærðum 24. júní 2026, minnisblaði Vegagerðarinnar dags. í mars 2026 og korti sem sýnir hljóðstigsreikning frá Arnarnesvegi ásamt 1m. hljóðvegg.

Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri, og Sigurður Jens Sigurðsson, sérfræðingur á hönnunardeild, frá Vegagerðinni og Berglind Hallgrímsdóttir samgönguverkfræðingur frá Eflu gerðu grein fyrir erindinu.

Freyr Snorrason verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Bókun:
„Miðflokkurinn tekur heilshugar undir áhyggjur íbúa vegna vaxandi umferðar um Arnarnesveg, en þar mælist hljóðstyrkur við húsveggi þegar yfir viðmiðunarmörkum. Nauðsynlegt er að fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir til hljóðlækkunar liggi fyrir, verði kynntar íbúum og sýnt fram á árangur þeirra við sambærilegar aðstæður áður en framkvæmdir hefjast. Jafnframt er bágborið að reglugerðum sé beitt eftir hentugleika. Reglugerð um hljóðvist virðist virt að vettugi þrátt fyrir að heilsa og lífsgæði íbúa séu í húfi. Á sama tíma er tæknilegum reglugerðum um vegtegundir fylgt í einu og öllu til að hafna kröfum íbúa. Hér er átt við ákall íbúa við Sólarsalir um tengingu við Arnarnesveg með hringtorgi. Þeirri kröfu hefur verið hafnað á grundvelli þess að Arnarnesvegur tilheyrir vegtegund A22, en samkvæmt henni eiga að vera 600 metra á milli gatnamóta. Íbúar hafa hinsvegar sýnt fram á að þessi rök standast ekki skoðun, þar sem fjarlægðin á milli nokkurra hringtorga og gatnamóta á Arnarnesvegi er þegar undir 300 metrum. Miðflokkurinn deilir einnig áhyggjum íbúa af aukinni umferð um Salarveg sem mun fylgja breytingum á Arnarnesvegi. Salarvegur er mikil skóla- og frístundaleið þar sem fjöldi barna þverar götuna daglega. Knýjandi þörf er á að finna lausnir til að draga verulega úr umferðarhraða á Salarvegi. Telur Miðflokkurinn algjörlega nauðsynlegt að ráðist verði í þær aðgerðir áður en umferðarþungi á svæðinu eykst frekar.“
Beitir Ólafsson.

Fundarhlé kl. 16:32, fundi fram haldið kl. 16:40.

Bókun:
„Tilgangur með frestun málsins er að fara enn og aftur yfir gögn málsins og sjá hvort fleiri lausnir eru í boði sem gætu þjónað íbúum. Að sama skapi verður að gæta að umferðaröryggi og flæði umferðar.“
Hjördís Ýr Johnson, Leifur Andri Leifsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Afgreiðslu frestað. Vísað til frekari úrvinnslu á umhverfissviði.

Gestir

  • Berglind Hallgrímsdóttir - mæting: 16:00
  • Sigurður Jens Sigurðsson - mæting: 16:00
  • Bryndís Friðriksdóttir - mæting: 16:00

Almenn erindi

5.2606034 - Hallahvarf 25-33. Byggingaráform.

Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags. 25. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallarhvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 3. júlí 2026.
Bókun:
„Miðflokkurinn fagnar því að skipulagsfulltrúi Kópavogs hafi samþykkt tilögu hönnuðar og byggingarverktaka, og þannig svarað ákalli um fjölgun bílastæða við Hallahvarf 25-33 í 61 stæði, þrátt fyrir að skilmálar deiliskipulags hafi upprunalega gert ráð fyrir 46 stæðum. Mikil vöntun og þörf hefur verið á bílastæðum við nýbyggingar í Kópavogi og er þetta fagnaðarefni og vonandi vísir að breyttri stefnu í þeim málum.“
Beitir Ólafsson

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2026 samþykkt.

Almenn erindi

6.26062522 - Háahvarf 2-4. Byggingaráform.

Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags. 18. júní 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2-4 við Háahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2026.
Bókun:
„Miðflokkurinn fagnar því að skipulagsfulltrúi Kópavogs hafi samþykkt tillögu hönnuðar og byggingarverktaka, og þannig svarað ákalli um fjölgun bílastæða við Háahvarf 2-4 í 44 stæði, þrátt fyrir að skilmálar deiliskipulags hafi upprunalega gert ráð fyrir 39 stæðum. Mikil vöntun og þörf hefur verið á bílastæðum við nýbyggingar í Kópavogi og er þetta fagnaðarefni og vonandi vísir að breyttri stefnu í þeim málum.“
Beitir Ólafsson.

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2026 samþykkt.

Almenn erindi

7.26062143 - Skólahvarf 2-4. Byggingaráform.

Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform Andra Klausen arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2-4 við Skólahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

8.26042886 - Erindi varabæjarfulltrúa Bergs Þorra Benjamínssonar um götuhreinsun í Kópavogi.

Lagt fram að nýju erindi varabæjarfulltrúa Bergs Þorra Benjamínssonar dags. 22. apríl 2026 um götuhreinsun í Kópavogi. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 4. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar umhverfissviðs. Lagt fram ásamt umsögn deildarstjóra gatnadeildar dags. 1. júlí 2026.
Lagt fram.

Almenn erindi

9.26054249 - Fyrirspurn varabæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um stoppistöðvar strætó í Hamraborg og kynningarfund fyrir íbúa.

Lögð fram fyrirspurn varabæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar dags. 26. maí 2026 um fyrirkomulag stöppustöðva í Hamraborg og kynningarfund fyrir íbúa.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingar þakka fráfarandi fulltrúa Pírata fyrir að benda á að vöntun sé á umferðaröryggi við stoppistöðvar strætó á Kópavogshálsi, en í núverandi fyrirkomulagi stoppa leiðirnar alveg við gangbrautina yfir Kópavogsháls þar sem gengið er að Bókasafni Kópavogs og Tónlistarskóla Kópavogs. Við viljum jafnframt benda á að í ljósi þess að miklar framkvæmdir eru væntanlegar á svæðinu og þungaflutningar í kjölfarið þarf að skoða vel ökuleiðir stórra vinnuvéla og vörubíla og reyna að sporna við að þessi þunga umferð beinist í átt að fjölförnum gönguleiðum og sömuleiðis ekki fram hjá Kópavogsskóla og MK.“
Eydís Inga Valsdóttir og Sólveig Skaftadóttir.

Vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Almenn erindi

10.26061982 - Tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði um umferðaröryggi við skóla í Kópavogi.

Lögð fram til umræðu tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 29. júní 2026 um umferðaröryggi við skóla og götur í Kópavogi.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingar fagna því að verið sé að ræða umferðaröryggi barna við skóla bæjarins. Þrátt fyrir að fyrirspurnin sé mjög opin styðjum við að ráðist verði í úttekt á umferðaröryggi við grunn- og leikskóla bæjarins með sérstaka áherslu á göngu- og hjólaleiðir barna til og frá skóla. Auk þess má endurskoða aðgerðir og áætlanir við að draga úr umferðarhraða.“
Eydís Inga Valsdóttir og Sólveig Skaftadóttir.

Lagt fram. Umræður.

Almenn erindi

11.26061983 - Tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði um Guðmundarlund

Lögð fram til umræðu tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 29. júní 2026 um að bjóða fulltrúum Skógræktarfélags Kópavogs á fund skipulags- og umhverfisráðs til að ræða stöðu Guðmundarlundar, aðstöðu og mögulegar úrbætur.
Lagt fram. Umræður.

Almenn erindi

12.26063218 - Tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði um býflugnagarð í Kópavogi

Lögð fram til umræðu tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 29. júní 2026 um að skoðaðir verði möguleika á að koma upp býflugnagarði í landi Kópavogs.
Lagt fram. Vísað til garðyrkjustjóra til skoðunar.

Almenn erindi

13.2607129 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur um upplýsingagjöf vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.

Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur dags. 2. júlí 2026 um upplýsingagjöf og stuðning við íbúa vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Fundi slitið - kl. 17:38.