Dalsmári 1. Smáraskóli

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Dalsmára, lóð skólabyggingar Smáraskóla, fyrir hagsmunaaðilum á lóðunum nr. 1-7 við Dalsmára.

Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir núverandi færanlegar skólastofur stækkar til norðausturs um 19,7m x 22m svo hægt sé að koma fyrir 135,1 m² færanlegri skólastofu. Fyrirhuguð skólastofa er á einni hæð með flötu þaki. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 3.06 m.

Tillagan er sett fram á kynningaruppdráttum dags. 4. júní 2026.

Ofangreind tillaga er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 736/2026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 736/2026, eigi síðar en 12. júlí 2026.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Dalsmári 1. Smáraskóli
Tímabil
11. júní til 12. júlí 2026