Hlíðarhvarf 21

Grenndarkynning

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. mars 2026 var samþykkt með vísan til 2. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 21 við Hlíðarhvarf fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 16-20 við Hlíðarhvarf.

Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði og aðkoma færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag.

Tillagan er sett fram á uppdráttum dags. 13. maí 2026 og henni fylgir einnig lóðaruppdrættir dags. 30. apríl 2026.

Ofangreind tillaga er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 629/2026, á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is / umhverfi / skipulagsmál / skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 629/2026, eigi síðar en 21. júní 2026.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Hlíðarhvarf 21
Tímabil
20. maí til 21. júní 2026