Fréttir & tilkynningar

Uppfærsla á vef

Röskun getur orðið á vefsíðu Kópavogsbæjar upp úr kl. 11 í dag á meðan unnið er að breytingum.
Sigurvegarar aldursflokka stilltu sér upp til myndatöku á keppni lokinni.

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast

Metþátttaka var í götugöngu Virkni og vellíðan sem haldin var í fjórða sinn þriðjudaginn 12.maí. Hröðustu göngugarparnir voru þau Fríða Björk Gunnarsdóttir og Sverrir Davíð Hauksson en þau unnu einnig aldursflokkaverðlaun 70-80 ára.
Veggur við Hálsatorg, QR-kóði vísar á upplýsingasíðu um framkvæmdir og uppbyggingu í miðbæ Kópavogs…

Upplýsingagjöf á vegg við Hálsatorg

Afráðið var í upphafi árs að nýta vegg við Hálsatorg undir upplýsingagjöf á vegum bæjarins í tengslum við uppbyggingu nýs miðbæjar, enda hentug staðsetning þar sem framkvæmdasvæði á Fannborgarreit skammt undan.
Velferðarsvið Kópavogsbæjar hefur sett á laggirnar fósturteymi barnaverndarþjónustu.

Velferðarsvið Kópavogsbæjar setur á laggirnar fósturteymi barnaverndarþjónustu

Á 17. fundi velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar var kynnt ákvörðun um að setja á laggirnar nýtt fósturteymi innan barnaverndarþjónustu Kópavogs. Um er að ræða mikilvægt og jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu þjónustu við börn í viðkvæmri stöðu og þá aðila sem annast þau. Með breytingunum er markmiðið að styrkja faglega eftirfylgd, stuðning og samfellu enn frekar í þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna.

Lokað fyrir kalt vatn

Loka þarf fyrir allt vatn í Kópavogi fyrir utan vatnsendahverfið (Þing og Hvörf) vegna tengingar á nýjum vatnstanki við veitukerfi bæjarins, lokunin mun standa frá kl 22.00 þann 19. maí næstkomandi og tekur ca 4 tíma.
Miðbær í mótun

Ný vefsíða um uppbyggingu miðbæjar Kópavogs komin í loftið

Kópavogsbær hefur opnað nýja upplýsingasíðu um uppbyggingu miðbæjarins á slóðinni midbaer.kopavogur.is.
Í Kópavogslaug, sem er önnur tveggja almenningslauga í Kópavogi.

Rafrænt sundkort komið í sölu

Kópavogsbær hefur tekið í notkun rafrænt sundkort sem hægt er að kaupa á netinu og setja beint í veskið í símanum. Kortið gildir í Salalaug og Kópavogslaug.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Emilíana Torrini bæjarlistamaður Kópavogs árið 2026 og Elísabet …

Emilíana Torrini tilnefnd Bæjarlistamaður Kópavogs 2026

Kópavogsbær hefur tilnefnt söngkonuna og lagahöfundinn Emilíönu Torrini Bæjarlistamann Kópavogs árið 2026. Það var Elísabet Sveinsdóttir formaður menningar- og mannlífsnefndar sem tilkynnti valið við hátíðlega athöfn í Salnum í dag.
Á myndinni eru frá vinstri Ásdís Kristjánsdóttir, Hrafnhildur Davíðsdóttir, Bragi Valdimar Skúlason…

Hvað á menningarmiðstöðin að heita?

Kópavogsbær efnir til nafnasamkeppni um nafn á nýrri menningarmiðstöð sem verður opnuð í Smáralind vorið 2027.
Vestanvert Kársness er til umfjöllunar í nýju myndbandi.

Myndband um framtíðarsýn fyrir Kársness

Framtíðarsýn fyrir vestanvert Kársness er viðfangsefni nýs myndbands sem unnið hefur verið fyrir Kópavogsbæ. Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar, Halldóra Hreggviðsdóttir ráðgjafi hjá Alta og Jóhann Jökull Ásmundsson íbúi á Kársnesi fjalla um svæðið, þátttöku íbúa í skipulagsvinnu og fyrirhuguð áform á Kársnesi.