Götuganga Virkni og vellíðan haldin í fjórða sinn

Götugangan í Kópavogi er vinsæll viðburður fyrir 60 ára og eldri.
Götugangan í Kópavogi er vinsæll viðburður fyrir 60 ára og eldri.
Götuganga Virkni og Vellíðan verður haldin þriðjudaginn 12. maí næstkomandi klukkan 13:00 í Kópavogi. Um er að ræða vinsælan íþrótta- og heilsueflingarviðburð fyrir 60 ára og eldri sem nú fer fram í fjórða sinn.
 
Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og laðað að sér fjölda þátttakenda sem koma saman til að hreyfa sig, njóta samveru og taka þátt í léttum keppnisanda. Í ár verður boðið upp á nýjung þar sem þátttakendur geta valið á milli tveggja vegalengda, 1,5 km og 3,4 km, sem gerir viðburðinn aðgengilegri fyrir enn fleiri.
 
Keppt verður í þremur aldursflokkum, 60–69 ára, 70–79 ára og 80 ára og eldri. Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í karla- og kvennaflokki auk þess sem allir skráðir þátttakendur eiga möguleika á að vinna útdráttarverðlaun.
 
Þátttaka í göngunni er ókeypis og eru allir hvattir til að skrá sig og taka þátt. Einnig eru gestir velkomnir til að mæta og hvetja þátttakendur.