Sigríður Beinteinsdóttir, betur þekkt sem Sigga Beinteins, er bæjarlistamaður Kópavogs 2025. Tilnefningin var formlega tilkynnt við hátíðlega athöfn í Bókasafni Kópavogs í dag af Elísabetu Sveinsdóttur, formanni menningar- og mannlífsnefndar, en nefndin velur bæjarlistamann.
Kópurinn, viðurkenningar menntaráðs Kópavogs fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi, var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum fimmtudaginn 22. maí. Alls bárust 19 tilnefningar um 18 verkefni til menntaráðs og voru veittar fimm viðurkenningar fyrir verkefni sem þóttu fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skóla og frístundastarfi.
Kópavogsbæ barst þann 2. maí síðastliðinn úrskurður frá innviðaráðuneytinu þar sem ákvörðun Kópavogsbæjar um úthlutun lóða og byggingarréttar að Roðahvarfi 2-36 og 1-21, frá 11. júní 2024 var felld úr gildi á þeim grundvelli að hún færi í bága við 11. gr. stjórnsýslulaga.
Betri samgöngur og Vegagerðin í samstarfi við Kópavogsbæ efna til kynningarfundar um stöðu og framgang verkefna Samgöngusáttmálans. Fundurinn fer fram í Salnum þriðjudaginn 20.maí og hefst klukkan 17.00.
Þriðjudaginn 13. maí fundaði Bæjarstjórn Kópavogs með fulltrúum ungmennaráðs og grunnskólabarna bæjarins. Á fundinum voru lagðar fram tillögur Barna- og ungmennaþings en það er einn af hornsteinum barnvæns sveitarfélags, eins og Kópavogur er, að börn og ungmenni fái að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.