Framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram. Fjölda lykilverkefna er lokið og unnið er að frágangi brúa, undirganga og vegtenginga. Í maí er áætlað að hefja malbikun á Breiðholtsbraut.
Heimar hafa lokið að fara yfir hugmyndir sem bárust í samkeppni um hönnun nýrrar menningarmiðstöðvar í Smáralind. Að loknu mati á innsendum tillögum varð tillaga BASALT arkitekta valin til áframhaldandi þróunar verkefnisins.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Halldór Victorsson, formaður Spretts, skrifuðu undir viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthús og skólastofu miðvikudaginn 29.apríl.
Nám- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan er heiti nýrrar viðbragðsáætlunar sem samþykkt var í menntaráði Kópavogs 17.mars síðastliðinn. Markmið áætlunarinnar er að styrkja heilbrigt og faglegt skólaumhverfi sem byggir á öryggi, trausti og virðingu fyrir nemendum og starfsfólki.
Götuganga Virkni og Vellíðan verður haldin þriðjudaginn 12. maí næstkomandi klukkan 13:00 í Kópavogi. Um er að ræða vinsælan íþrótta- og heilsueflingarviðburð fyrir 60 ára og eldri sem nú fer fram í fjórða sinn.
Miðvikudaginn 29. apríl frá kl. 9:00 til um það bil 15:00 er áætlað að endurnýja malbik á Kópavogsbraut á milli Sunnuhlíðar og Skjólbrautar ef veður leyfir. Lokað verður fyrir umferð við hringtorg á Kópavogsbraut við Sunnuhlíð og á gatnamótum Kópavogsbrautar og Skjólbrautar.