Askalind 2

Auglýsing

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum þann 26. maí 2026 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 2 við Askalind.

 

Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni ásamt því að bæta við stigahúsi með lyftu norðan megin við húsið og fjölga bílastæðum.

 

Tillagan er sett fram á uppdráttum dags. 5. maí 2026, uppfærðum 20. maí 2026. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

 

Ofangreind tillaga er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 665/ 2026 og á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu

 

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum www.skipulagsgatt.is málsnr. 665/2026, eigi síðar en 12. júlí 2026.

 

Fyrir frekari upplýsingar má senda fyrirspurn á netfangið skipulag@kopavogur.is. Einnig er hægt er að bóka símtal í gegnum www.kopavogur.is.