Fagrahvarf 2-8

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 23. júní 2026 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 2-8 við Fagrahvarf fyrir hagsmunaaðilum á lóðum 1 til 13 við Faldarhvarf, oddatölur.

Í breytingunni felst stækkun byggingarreits um 1,65 m til suðurs til að koma fyrir 9m² utanáliggjandi svölum á íbúðum að Fagrahvarfi 2-4 og 6-8.

Tillagan er sett fram á kynningaruppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500.

Ofangreind tillaga er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 839/2026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 839/2026, eigi síðar en 7. ágúst 2026.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.