Holtagerði 4

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn vegna lóðarinnar nr. 4 við Holtagerði fyrir hagsmunaaðilum að Holtagerði 1, 2, 3, 5, 6 og 8 við Kársnesbraut 53, 55 og 57.

Sótt er um að endurbyggja og stækka núverandi sólstofu úr 17 m² í 25,5 m² ofan á bílskúr ásamt því að setja vegg við hlið útitrappa til að styðja undir nýjar svalir á suð-austur hluta efri hæðar.

Tillagan er sett fram á uppdráttur dags. 10. júní 2025.

Ofangreind kynning er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 757/2026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 757/2026, eigi síðar en 17. júlí 2026.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.