Melgerði 14

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn vegna lóðarinnar nr. 14 við Melgerði fyrir hagsmunaaðilum að Melgerði nr. 10, 11, 12, 13, 15, 16, 18 og Borgarholtsbraut nr. 29, 31 og 33.

Sótt er um að byggja viðbyggingu yfir verönd framan við forstofu og taka niður burðarvegg í eldhúsi og stofu, alls stækkun upp á 14,4 m².

Tillagan er sett fram á uppdráttum dags. 15. desember 2025.

Ofangreind kynning er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 754/2026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 754/2026, eigi síðar en 17. júlí 2026.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Melgerði 14
Tímabil
16. júní til 17. júlí 2026