Þríhnúkar

Kynning

Skipulags-og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 20. apríl 2026 að kynna lýsingu á vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Í lýsingunni er gerð grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að vinnu við gerð deiliskipulags við Þríhnúkagíg, m.a hvað varðar forsendugreiningu, umhverfismat og kynningu og samráð. Fyrirhugað er að skipulagssvæði taki til Þríhnúkagígs ásamt gönguleiðum og öðrum mannvirkjum vegna aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og útivist í nágrenninu. Svæðið er skilgreint sem afþreyingar- og ferðamannasvæði og óbyggt svæði í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Meginmarkmið skipulagsvinnunnar er að móta framtíðarsýn um ferðaþjónustu starfsemi við Þríhnúka og aðgengi að svæðinu. Við mótun skipulagsins verður lögð áhersla á vernd jarðmyndana og landslags ásamt því að stuðla að vatnsvernd og mengunarvörnum.

Ofangreind skipulagslýsing er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 480/2026 og á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is/ umhverfi/ skipulagsmál/ skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á netfangið skipulag@kopavogur.is. Einnig er hægt er að bóka símtal í gegnum www.kopavogur.is.

Eru öll sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is málsnr. 480/2026, eigi síðar en 9. júní 2026. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar á póstfangið skipulag@kopavogur.is.

Þríhnúkar
Tímabil
14. maí til 9. júní 2026