21.11.2016
Aðventuhátíð í Kópavogi
Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin 26. og 27. nóvember frá 13-17
báða dagana. Boðið er upp á dagskrá fyrir alla fjölskylduna á hátíðinni sem fer fram í og við Menningarhúsin í Kópavogi. Tendrað verður á jólatréinu klukkan fjögur á laugardag á útivistarsvæðinu við húsin og þar verður einnig jólamarkaður um helgina þar sem gæðamatvara, heitir drykkir og handverk verður til sölu.