Styrkir Forvarnarsjóðs Kópavogs voru afhentir í þriðja sinn þriðjudaginn 21. Júní. Hæsta styrkinn, 500.000 krónur, hlaut verkefnið Tónlist – aukin lífsgæði.
Spot on Kársnes
er yfirskrift verðlaunatillögunnar í alþjóðlegri hugmyndasamkeppninni um Kársnes í Kópavogi, sem hleypt var af stokkunum í október síðastliðnum en úrslit voru kynnt í Helsinki í dag, 16. júní. Að verðlaunatillögunni standa Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt, Anders Egebjerg Terp landslagsarkitekt og Gunnlaugur Johnson, arkitekt.
Elstu börnin á leikskólanum Rjúpnahæð í Kópavogi mættu í bæjarstjórnarsal Kópavogs í vikunni og funduðu með bæjarstjóra Kópavogs , Ármanni Kr. Ólafssyni, sem sat fyrir svörum eftir að hafa sagt þeim stuttlega frá störfum bæjarstjóra og bæjarstjórnar.
Tæplega 400 hugmyndir bárust í hugmyndasöfnun í verkefninu Okkar Kópavogur en hugmyndasöfnun lauk 31. maí. Hugmyndum var safnað á vef verkefnisins en einnig voru haldnir fimm íbúafundir þar sem þátttakendur lögðu til hugmyndir, ræddu og kynntu og sameinuðust á hverjum fundi að lokum um tíu. Þátttaka í verkefninu hefur verið vonum framar og margar spennandi hugmyndir komnar í pottinn.
Laugardaginn 4. júní kl. 13.30 verður síðasta fjölskyldustund þessa vetrar í menningarhúsum Kópavogs á dagskrá.
Að þessu sinni verður fjölskyldum boðið í gönguferð sem hefst fyrir utan Gerðarsafn.
Kópavogsbær, Smárabyggð ehf. og Reginn fasteignafélag hafa undirritað samkomulag um uppbyggingu í Smáranum, nýju hverfi sunnan Smáralindar. Markmið samkomulagsins er að styrkja svæðið sem öflugt, vistvænt og eftirsóknarvert íbúðar- og verslunarsvæði í miðju höfuðborgarsvæðisins og að nýta núverandi innviði bæjarfélagsins betur.
Á málþingi um göngu- og hjólastíg sem haldið var í Salnum í Kópavogi var ákveðið að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, myndu leiða vinnuhóp sem myndi leggja fram tillögur að flokkun, útfærslu, þjónustu og umgjörð stígakerfisins í samstarfi við fulltrúa Vegagerðarinnar, Samgöngustofu og Skipulagsstofnunar. Málþingið var haldið að frumkvæði Kópavogsbæjar i samvinnu við SSH og Samgöngustofu.