Kastalagerði 4

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn vegna lóðarinnar nr. 4 við Kastalagerði fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 1, 2, 3, 5 og 6 við Kastalagerði, nr. 18 við Borgarholtsbraut og nr. 7 og 7A við Urðarbraut.

Sótt er um að framlengja valmaþak yfir bílskúr og að hækka bílskúrsveggi upp í nýtt þak. Tillagan er sett fram á uppdráttum dags. 25. desember 2008, uppfærðum 4. febrúar 2026.

Ofangreind kynning er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 760/2026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 760/2026, eigi síðar en 17. júlí 2026.

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.