Smiðjuvegur 11

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn vegna lóðarinnar nr. 11 við Smiðjuveg fyrir hagsmunaaðilum að Smiðjuvegi 11, 11A, og Fossvogsbrún 8 og 10.

 

Sótt er um að byggja 27m² anddyri norðan megin við iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á lóð nr. 11 við Smiðjuveg (mhl. 01). Fyrirhuguð viðbygging verður nýr inngangur inn í verslunarrýmið, um leið verður fimm stórum gluggum lokað. Jafnframt verður bætt við milligólfi, samtals 400 m² viðbót.

 

Tillagan er sett fram á uppdráttum dags. 30. október 2025.

 

Ofangreind kynning er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 7172026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 717/2026, eigi síðar en 8. júlí 2026.

 

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.