Stígagerð í botni Kópavogs

Grenndarkynning

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 1. júní 2026 var samþykkt að grenndarkynna framkvæmdaleyfisumsókn á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040.

Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Samhliða verður sett upp ný brú fyrir gangandi vegfarendur við hlið þeirrar sem þegar er á svæðinu. Þá verður settur upp gegnsær hljóðveggur.

 

Tillagan er sett fram á uppdráttum dags. í febrúar og tillögunni fylgir einnig minnisblað með lýsingu á framkvæmdinni dags. 8. maí 2026.

 

Ofangreind kynning er aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is málsnr. 708/2026, á vef Kópavogsbæjar https://eldri.kopavogur.is/is/umhverfismal/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1.

 

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 708/2026, eigi síðar en 2. júlí 2026.

 

Ef óskað er frekari upplýsinga um tillöguna má hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.